Um Gumma
Gummi, oftar þekktur sem Gummi kíró, býr yfir áratugs reynslu sem leiðandi kírópraktor og hefur hann unnið með þúsundum einstaklinga að því að bæta líðan, frammistöðu og lífsgæði.
Reynslan spannar langt út fyrir meðferðina sjálfa – hún snýst um manninn í heild sinni.
Gummi er eigandi Atelier markaðsstofu og Autumn Clothing og hefur skapað sér sterka stöðu sem fyrirmynd í sjálfsmynd, stíl og heilbrigðum lífsstíl.
Reglulega nefndur meðal best klæddu karlmanna Íslands og nýtur mikillar virðingar fyrir fagmennsku og nálgun.
Einnig heldur hann úti hlaðvarpinu „Tölum um,“ þar sem hann fjallar á einlægan hátt um málefni andlegrar og líkamlegrar heilsu með áhrifaríkum viðtölum við viðmælendur.