Gummi Kíró
Sex skref að árangri og frama - fyrirlestur
Sex skref að árangri og frama - fyrirlestur
Couldn't load pickup availability
Upplýsingar
Fyrirlesturinn er 50 - 60 mínútur og henta bæði minni og stærri hópum. Gummi getur boðið upp á spurningar eftir fyrirlesturinn til þess að áhorfendur geti kynnst honum betur og fengið ráðleggingar.
Um fyrirlesturinn
Í fyrirlestrinum fer Gummi yfir sex skref að því að ná árangri og frama. Hann fer yfir sinn frama alveg frá því afhverju hann fór í kírópraktor nám til dagsins í dag þar sem hann opinber persóna sem þorir að standa út. Gummi stofnaði kírópraktor stöð beint eftir að hann útskrifaðist í Stokkhólmi. Hann fer yfir hvað hann hefur lært síðan þá og hvað það er sem skiptir máli þegar kemur að því að starfa sem áhrifavaldur á Íslandi. Gummi fer einnig yfir hvað er mikilvægt að hafa í huga til að ná markmiðum sínum.
Fyrirlesturinn var upphaflega gerður fyrir menntaskólanema en hentar öllum þeim sem vilja hvatningu. Til dæmis hentar fyrirlesturinn vel sem partur af árshátíðar-, stefnumótunar eða skipulagsdegi á minni og stærri vinnustöðum.
Bókanir
Ef að þú ,,kaupir" vöruna hér á síðunni höfum við samband við þig og gerum ykkur tilboð í fyrirlesturinn miðað við ykkar þarfir.
Frekari upplýsingar má líka nálgast á gummikiro@gummikiro.is
Share
